Þelamörk: Breyta heimavistinni í íbúðarhúsnæði

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri í Hörgársveit, undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um aðkomu stjórnvalda að húsnæðisuppbyggingu í Hörgársveit. Fyrsti þáttur verkefnisins felur í sér að breytingu á húsnæði að Laugalandi á Þelamörk, sem áður var heimavist fyrir Þelamerkurskóla, í hagkvæmt íbúðarhúsnæði. Gert er ráð fyrir að þannig megi fjölga leiguíbúðum um allt að níu í sveitarfélaginu.

Spennandi kostur að nýta eldra húsnæði

Fjölga á leiguíbúðum í sveitarfélaginu en mikill skortur hefur verið á húsnæði í Hörgársveit um lengri tíma meðal annars vegna nálægðar við Akureyrarbæ, þar sem mikill vöxtur hefur verið undanfarin ár. „Það er spennandi kostur að nýta húsnæði sem fyrir er í sveitarfélaginu til þess að fjölga íbúðum í stað þess að láta það standa óhreyft og byggja nýtt, sagði Ásmundur Einar við undirritunina.

Íbúðalánasjóður veitir þriggja milljóna króna þróunarstyrk

Íbúðalánasjóður mun einnig koma að útfærslu verkefnisins og hefur sjóðurinn ákveðið að leggja sveitarfélaginu til þriggja milljóna króna styrk til þróunar þess. Styrkurinn er veittur sem hluti af sérstöku tilraunaverkefni sjóðsins, sem snýr að því að örva húsnæðisuppbyggingu utan suðvesturhorns landsins og bregðast við erfiðu ástandi á húsnæðismarkaði, ekki hvað síst á landsbyggðinni.

„Að undanförnu hefur samskonar verkefnum verið ýtt úr vör víða á landsbyggðinni og eru fleiri í farvatninu. Eftir langvarandi stöðnun þykir mér afar ánægjulegt að fylgja þeim úr hlaði á hverjum stað fyrir sig. Ég hef lagt ríka áherslu á að húsnæðisskortur standi ekki atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni fyrir þrifum og bind vonir við að þessar aðgerðir styrki atvinnulíf hringinn í kringum landið,“ segir Ásmundur Einar.

DEILA

Fleiri fréttir

Nýjar íbúðir að verða tilbúnar í Stykkishólmi

Það styttist í afhendingu íbúða sem Brák íbúðafélag hses. er með í byggingu við Bauluvík í Stykkishólmi. Unnið er að lokafrágangi og áætlað að...

Bjarg íbúðafélag lokið við byggingu fimm íbúða á Hellu

Bjarg íbúðafélag hses. hefur lokið við byggingu fimm íbúða á Hellu í Rangárþingi ytra. Um er að ræða raðhús á einni hæð þar sem...