Nýjar íbúðir að verða tilbúnar í Stykkishólmi

Það styttist í afhendingu íbúða sem Brák íbúðafélag hses. er með í byggingu við Bauluvík í Stykkishólmi. Unnið er að lokafrágangi og áætlað að fyrstu íbúðir verði teknar í notkun í desember næstkomandi og þá leigðar út til tekju- og eignaminni heimila. 

Íbúðir Brákar, sem verða alls 12 talsins í þremur fjölbýlishúsum, eru um 60 til 95 fermetrar að stærð með einu til þremur svefnherbergjum. 

Brák íbúðafélag fékk samþykkt úthlutun á stofnframlagi fyrir þetta verkefni í úthlutun HMS árið 2023. Íbúðirnar eru því fjármagnaðar með stofnframlagi frá ríki og sveitarfélagi ásamt sérstöku byggðarframlagi og leiguíbúðaláni frá HMS. 

Verkefnið er hluti af Tryggð byggð – samstarfsvettvangi um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni. 

DEILA

Fleiri fréttir

Nýtt raðhús rís á Hólmavík

Brák íbúðafélag hses. er að ljúka við byggingu á fjögurra íbúða raðhúsi á Hólmavík í Strandabyggð. Byggingaraðilinn Búðingar ehf. hóf framkvæmdir við bygginguna í ágúst...

Undirrituðu viljayfirlýsingu um fjölgun leiguíbúða í Fjarðabyggð

Fjarðabyggð, leigufélagið Bríet, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og verktakafyrirtækið Búðingar ehf. undirrituðu nýverið viljayfirlýsingu um uppbyggingu og styrkingu  leiguíbúðamarkaðarins í Fjarðabyggð. Samkvæmt viljayfirlýsingunni þá mun...