Stofnframlög

Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir tekju- og eignamörkum við upphaf leigu. Stofnframlög eru veitt til byggingar og kaupa á almennum íbúðum.

Hægt er að sækja um stofnframlög hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun til byggingar eða kaupa á hagkvæmum almennum íbúðum sem ætlaðar eru fyrir leigjendur undir tekju- og eignamörkum. Stofnframlagið nemur að lágmarki 18% af stofnvirði íbúðanna.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun auglýsir eftir umsóknum um stofnframlög að lágmarki einu sinni á ári þar sem aðilar sem uppfylla lög um almennar íbúðir geta sótt um s.s. húsnæðissjálfseignastofnanir, sveitarfélög eða lögaðilar í eigu sveitarfélaga.

Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir tekju- og eignamörkum við upphaf leigu svo leigufjárhæð íbúðanna fari ekki umfram fjórðung tekja leigjendahópsins.

Sjá nánar á vef HMS.

DEILA

Fleiri úrræði

Bríet í samstarf við Fjarðabyggð

Leigufélagið Bríet og Fjarðabyggð skrifuðu nýverið undir samstarf þar sem Bríet kemur til með að taka við íbúðum í eigu sveitarfélagsins. Fjarðabyggð kemur til...

Byggja parhús við Stórutjarnir í Þingeyjarsveit

Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. fengu úthlutað stofnframlögum árið 2019 til byggingar á tveimur íbúðum og var fyrsta skóflustungan tekin að íbúðunum þann 30. október sl....