Lokið hefur verið við byggingu nýs íbúðakjarna fyrir fatlað fólk auk skammtímavistunar fyrir fötluð börn í Fjarðabyggð og fékk íbúðakjarninn nafnið Skálinn. Framkvæmdir hófust í byrjun árs 2024 og var kjarninn opnaður við formlega athöfn fimmtudaginn 5. júní. Fyrstu íbúðirnar verða afhentar íbúum á allra næstu dögum og er stefnt að því að allir íbúar verði fluttir inn fyrir lok mánaðar.
Fjármögnun verkefnisins byggði á stofnframlagi frá ríki og sveitarfélagi sem veitt var í fyrstu úthlutun ársins 2024. Til viðbótar komu sérstakt byggðarframlag og viðbótarframlag frá ríkinu. Þessi stuðningur var lykilþáttur í að gera uppbyggingu nýja íbúðakjarnans að veruleika.
Húsnæðið er sérhannað með þarfir barna og fjölskyldna þeirra í huga og felur í sér bæði langtímabúsetu og sveigjanlega skammtímavistun. Í húsnæðinu eru sex einstaklingsíbúðir ásamt starfsmannaaðstöðu og setustofu fyrir íbúa og gesti Um er að ræða mikilvæga innviðauppbyggingu fyrir Austurland, sem stuðlar að bættri þjónustu og aðgengi fyrir fötluð fólk.
Við opnunina flutti Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávarp þar sem hún sagði meðal annars: „Með þessu er mikilvægt skref stigið til að bæta stuðning við fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Ég óska íbúum Fjarðabyggðar hjartanlega til hamingju.“
Bygging Skálans er enn eitt dæmið um markvissa og ábyrga uppbyggingu í takt við þarfir samfélagsins og metnað sveitarfélags í málefnum fjölskyldna og fatlaðs fólks.