Fyrsta skóflustungan tekin að nýjum leiguíbúðum í Grindavík

Fyrr í mánuðinum var tekin fyrsta skóflustungan að 10 nýjum íbúðum í Grindavík. Íbúðirnar eru á vegum Bjarg Íbúðafélag hses. sem fékk úthlutað stofnframlögum til byggingar íbúðanna í úthlutun HMS fyrir árið 2020. Íbúðirnar sem verða staðsettar við Víkurhóp eru ætlaðar til langtímaleigu fyrir fólk undir tekju- og eignamörkum.

HH smíði í Grindavík mun sjá um byggingu íbúðanna og verður m.a. hún fjármögnuð með stofnframlögum frá ríkinu annars vegar og Grindarvíkurbæ hins vegar. Stofnframlög eru húsnæðisstuðningur í formi eiginfjár annað hvort til byggingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði í þeim tilgangi að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði fyrir einstaklinga og fjölskyldur undir ákveðnum tekju- og eignamörkum. Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun sá um stofnframlag ríkisins sem nam 18% af stofnvirði íbúðanna á meðan Grindarvíkurbær veitti 12% stofnframlag.

Húsið samanstendur af 10 íbúðum sem eru allt frá tveggja og upp í fjögurra herbergja. Fermetrafjöldi íbúðanna er á bilinu 54,1-106 m². Bjarg íbúðafélag mun að öðru óbreyttu auglýsa úthlutanir á næstunni og íbúðirnar verða teknar í notkun snemma á næsta ári árið 2023. Nánari upplýsingar um íbúðirnar sem og reglur um úthlutun íbúðanna má finna á heimasíðu Bjarg Íbúðafélags www.bjargibudafelag.is.

DEILA

Fleiri fréttir

HMS opnar fyrir umsóknir um stofnframlög

Húsnæði- og mannvirkjastofnun hefur opnað fyrir umsóknir um stofnframlög fyrir aðra úthlutun ársins 2025. Opið verður fyrir umsóknir til og með 11. júlí. næstkomandi. Stofnframlög...

Afhending íbúða á Húsavík

Búfesti hsf. afhenti á dögunum nýjum íbúum fyrstu íbúðirnar í nýju raðhúsi við Grundargarð á Húsavík. Búfesti hefur verið með í byggingu 12 íbúðir...