Opið fyrir umsóknir um stofnframlög

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög í fyrstu úthlutun fyrir árið 2025. Stofnframlögin eru veitt til samfélagssinnaðra leigusala til að byggja eða kaupa almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignaminni heimili.

Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar næstkomandi.
Hér er hægt að senda inn umsókn.

Stofn­fram­lög hafa ver­ið veitt til upp­­­bygg­ing­­ar á alls 4.015 íbúð­­um

Frá árinu 2016 þegar lög um almennar íbúðir tóku gildi hafa stjórnvöld úthlutað stofnframlögum upp á rúmlega 32 milljarða til uppbyggingar á 4.015 leiguíbúðum víðs vegar um landið. Heildarfjárfesting í uppbyggingunni nemur um 158 milljörðum króna.

Fjölgun íbúða með stofnframlögum eftir landshlutum

Stofnframlög eru stuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í.

Markmiðið með stofnframlögum er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað og bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni heimila. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna.

Það eru ýmsar kröfur gerðar til almennra íbúða, sem eru byggðar eða keyptar með stofnframlögum, þær þurfa að uppfylla skilyrði um hagkvæmni t.a.m. stærðarmörk m.t.t. fjölda svefnherbergja. Þessi umgjörð er til þess fallin að lækka leiguverð og skapa aukið húsnæðisöryggi tekju-og eignaminni heimila.

Fyrirspurnir beinast á stofnframlag@hms.is

Nánar um stofnframlög

DEILA

Fleiri fréttir

Afhending íbúða á Húsavík

Búfesti hsf. afhenti á dögunum nýjum íbúum fyrstu íbúðirnar í nýju raðhúsi við Grundargarð á Húsavík. Búfesti hefur verið með í byggingu 12 íbúðir...

Búðardalur – hluti af aðgerðum stjórnvalda í húsnæðismálum

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Kristján Sturluson, sveitarstjóri Dalabyggðar, skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um aðkomu stjórnvalda að uppbyggingu á leiguhúsnæði í Búðardal....