Nýtt raðhús rís á Reykhólum

Brák íbúðafélag hses. er að ljúka við byggingu á fjögurra íbúða raðhúsi á Reykhólum í Reykhólahreppi.

Byggingaraðilinn Búðingar ehf. hóf framkvæmdir við bygginguna í lok síðasta sumars. Húsið er byggt úr forsmíðuðum timbureiningum sem fluttar eru á verkstað og er framkvæmdartíminn því einungis tæplega 12 mánuðir. Íbúðirnar eiga að fara í útleigu í byrjun sumars og eru þær ætlaðar fyrir tekju- og eignaminni heimili.

Verkefnið fékk samþykkt stofnframlag í fyrstu úthlutun HMS árið 2023. Fjármögnun verkefnisins er unnin með stuðningi stofnframlaga ríkis og sveitarfélags ásamt leiguíbúðaláni frá HMS. Verkefnið er í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins en samkvæmt henni er þörf fyrir 25 íbúðir á næstu fimm árum eða um fimm íbúðir á ári. Á síðasta ári fjölgaði íbúum í sveitarfélaginu um 10 manns en fjöldi íbúða stóð í stað.

Brák er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjuminni fjölskyldum aðgengi að íbúðum í langtímaleigu með því að kaupa eða byggja, eiga og hafa umsjón með rekstri og viðhaldi íbúðanna. Í dag eru 35 sveitarfélög um allt land sem eru aðilar að Brák og er félagið með rúmlega 300 íbúðir sem ýmist eru komnar í útleigu eða eru í undirbúningi.

„Verkefni Brákar skiptir sköpum fyrir Reykhólahrepp, nýir íbúar okkar fá loks húsnæði við hæfi,“ segir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps.

DEILA

Fleiri fréttir

Nýtt raðhús á Húsavík

Bjarg íbúðafélag er að ljúka við uppbyggingu á raðhúsi á Húsavík þar sem sex nýjar leiguíbúðir rísa með stuðningi stofnframlaga frá ríki og sveitarfélagi....

Stofnframlög til 152 íbúða á landsbyggðinni

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur samþykkt að veita stofnframlög til byggingar eða kaupa á alls 152 íbúðum í 7 sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta kom fram...