Nýjar leiguíbúðir afhentar á Egilsstöðum

Brák íbúðafélag hses. fékk afhent á dögunum 10 nýjar leiguíbúðir á Egilsstöðum. Framkvæmdum lauk á dögunum, en verktakafyrirtækið Esjuslóð ehf. sá um að ljúka frágangi íbúðanna. Íbúðirnar eru nú þegar flestar komnar í útleigu en þær eru sérstaklega áætlaðar fyrir tekju- og eignaminna fólk á vinnumarkaði. Fjármögnun verkefnisins var unnin með stuðningi stofnframlaga ríkis og sveitarfélags ásamt leiguíbúðaláni frá HMS sem var greitt út meðan á framkvæmdum stóð.

Auk þess hefur Brák þegar hafið undirbúning að byggingu fleiri íbúða á Egilsstöðum. Félagið hefur fengið samþykkt stofnframlög fyrir 10 íbúðum til viðbótar, sem munu styrkja leigumarkaðinn á Austurlandi enn frekar.

Brák er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum aðgengi að íbúðum í langtímaleigu með því að kaupa eða byggja, eiga og hafa umsjón með rekstri og viðhaldi íbúðanna.

DEILA

Fleiri fréttir

Leigufélagið Bríet og Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsa eftir byggingaraðilum til samstarfs

Sveitarfélagið Skagaströnd og Leigufélagið Bríet stefna á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum á Skagaströnd og auglýsa því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki...

Nýtt raðhús rís á Reykhólum

Brák íbúðafélag hses. er að ljúka við byggingu á fjögurra íbúða raðhúsi á Reykhólum í Reykhólahreppi. Byggingaraðilinn Búðingar ehf. hóf framkvæmdir við bygginguna í lok...