Leigufélagið Bríet ehf. tók nýtt raðhús á Reykhólum í notkun á dögunum. Um er að ræða fjögurra íbúða raðhús á einni hæð. Hver íbúð samanstendur af þremur svefnherbergjum, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Alrými með stofu/borðstofu og eldhúsi. Geymsluskúrar fylgja hverri íbúð og eru þeir staðsettir á lóð og eru um 10fm að stærð. Frágangur lóðar er langt kominn en búið er að helluleggja framan við inngang og verönd í garði þar sem útgengt er út stofu.
Verkefnið tónar vel við markmið Bríetar en þau eru að vera hluti af uppbyggingu og styrkingu leigumarkaðar sem stuðlar að öryggi á langtímaleigumarkaði með sérstaka áherslu á landsbyggðina og í samstarfi við sveitarfélögin í landinu.
Bríet er virkilega ánægð með útkomuna og eftirspurn eftir íbúðunum hefur farið fram úr væntingum. Við óskum íbúum nýju íbúðanna til hamingju með nýju heimilin og vonum að það fari vel um þá.



