
Fréttir
Fréttir, tilkynningar og innsýn um húsnæðismál og uppbyggingu á landsbyggðinni


Framkvæmdir hafnar við fjölbýlishús fyrir tekju- og eignaminni á Hvammstanga
Brák íbúðafélag hefur hafið framkvæmdir á íbúðum í nýju tveggja hæða fjölbýlishúsi á Hvammstanga sem ætlaðar eru til leigu fyrir tekju- og eignaminni fjölskyldur. Í húsinu verða alls tíu íbúðir þar sem átta þeirra eru fjármagnaðar með stofnframlögum frá ríki og sveitarfélagi sem í þessu tilfelli er Húnaþing vestra. Íbúðirnar eru fimm á hvorri hæð […]
Lesa meira→
Leigufélagið Bríet tekur í notkun nýjar íbúðir í Reykhólahreppi
Leigufélagið Bríet ehf. tók nýtt raðhús á Reykhólum í notkun á dögunum. Um er að ræða fjögurra íbúða raðhús á einni hæð. Hver íbúð samanstendur af þremur svefnherbergjum, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Alrými með stofu/borðstofu og eldhúsi. Geymsluskúrar fylgja hverri íbúð og eru þeir staðsettir á lóð og eru um 10fm að […]
Lesa meira→
Samþykkt stofnframlag til nýrra leiguíbúða fyrir aldraða á Dalvík
Brák íbúðafélag hefur fengið samþykkta umsókn um úthlutun stofnframlags úr fyrstu úthlutun ársins 2025, til byggingar á nýju leiguhúsnæði á Dalvík. Um er að ræða 12 íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum, búið utan á liggjandi lyftu. Íbúðirnar verða sérstaklega ætlaðar öldruðu fólki. Er um að ræða annað verkefnið sem fær samþykkt veitingu stofnframlaga í Dalvíkurbyggð, […]
Lesa meira→
HMS opnar fyrir umsóknir um stofnframlög
Húsnæði- og mannvirkjastofnun hefur opnað fyrir umsóknir um stofnframlög fyrir aðra úthlutun ársins 2025. Opið verður fyrir umsóknir til og með 11. júlí. næstkomandi. Stofnframlög eru stuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera […]
Lesa meira→
Nýr íbúðakjarni afhentur fyrir fatlað fólk í Fjarðabyggð
Lokið hefur verið við byggingu nýs íbúðakjarna fyrir fatlað fólk auk skammtímavistunar fyrir fötluð börn í Fjarðabyggð og fékk íbúðakjarninn nafnið Skálinn. Framkvæmdir hófust í byrjun árs 2024 og var kjarninn opnaður við formlega athöfn fimmtudaginn 5. júní. Fyrstu íbúðirnar verða afhentar íbúum á allra næstu dögum og er stefnt að því að allir íbúar […]
Lesa meira→
Nýtt raðhús rís á Reykhólum
Brák íbúðafélag hses. er að ljúka við byggingu á fjögurra íbúða raðhúsi á Reykhólum í Reykhólahreppi. Byggingaraðilinn Búðingar ehf. hóf framkvæmdir við bygginguna í lok síðasta sumars. Húsið er byggt úr forsmíðuðum timbureiningum sem fluttar eru á verkstað og er framkvæmdartíminn því einungis tæplega 12 mánuðir. Íbúðirnar eiga að fara í útleigu í byrjun sumars […]
Lesa meira→
Nýjar íbúðir fyrir aldraða á Seyðisfirði
Brák íbúðafélag hses. hefur lokið við uppbyggingu nýrra leiguíbúða við Lækjargötu 2 á Seyðisfirði sem ætlaðar eru íbúum 60 ára og eldri. Um er að ræða átta íbúða hús á einni hæð með samkomusal í miðrými þar sem áhersla er lögð á félagslegt umhverfi og aðgengi að hentugu húsnæði fyrir eldri íbúa samfélagsins. Í húsinu […]
Lesa meira→
Nýtt raðhús á Húsavík
Bjarg íbúðafélag er að ljúka við uppbyggingu á raðhúsi á Húsavík þar sem sex nýjar leiguíbúðir rísa með stuðningi stofnframlaga frá ríki og sveitarfélagi. Verkefnið fékk samþykkt úthlutun stofnframlaganna árið 2023. Um er að ræða nýsköpunarverkefni þar sem íbúðirnar voru forsmíðaðar af SG húsum á Selfossi og fluttar nánast fullbúnar til Húsavíkur. Á sama tíma […]
Lesa meira→

