Brák íbúðafélag hses. leitar að byggingaraðilum til samstarfs

Brák íbúðafélag hses. og Húnaþing vestra stefna á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum á Hvammstanga og auglýsa því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Brák.
Fyrirhugað er að byggðar verði alls 8 íbúðir í fjölbýlishúsi við Norðurbraut 15. Æskilegt væri að íbúðir væru af fjölbreyttum stærðum um 60-90 fermetrar að stærð.

Gögn fyrir áhugasama samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á brakibudafelag@brakibudafelag.is og skal gögnum skilað fyrir mánudaginn 14. október 2024.

Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.

Nánari upplýsingar veita Einar Georgsson framkvæmdastjóri Brákar íbúðafélags (einar.georgsson@brakibudafelag.is) og Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri Húnaþings vestra (unnur@hunathing.is).

DEILA

Fleiri fréttir

Nýr íbúðakjarni á Húsavík

Húsnæðissjálfseignastofnunin Vík hses hefur fengið afhentar íbúðir í íbúðakjarna við Stóragarð á Húsavík. Það var mat sveitastjórnar í Norðurþingi að það væri mikil þörf...

Framkvæmdir hafnar við fjölbýlishús fyrir tekju- og eignaminni á Hvammstanga

Brák íbúðafélag hefur hafið framkvæmdir á íbúðum í nýju tveggja hæða fjölbýlishúsi á Hvammstanga sem ætlaðar eru til leigu fyrir tekju- og eignaminni fjölskyldur....