Ætla að fjölga íbúðum á Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafa gert með sér viljayfirlýsingu um samstarf þess efnis að leita leiða í að fjölga íbúðum og efla stafræna stjórnsýslu á Skagaströnd.

Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagastrandar við undirritun viljayfirlýsingarinnar.

Lítið hefur verið byggt af íbúðarhúsnæði á Skagaströnd en einungis hefur fjölgað um eina íbúð síðastliðinn áratug þegar byggt var einbýlishús og er íbúðaskortur farinn að hafa veruleg áhrif. Í núgildandi húsnæðisáætlun sveitarfélagsins kemur meðal annars fram að skortur á íbúðarhúsnæði komi í veg fyrir eðlilega framþróun sveitarfélagsins. Ungt fólk sem vilji snúa aftur heim að loknu námi eða nýir íbúar sem vilja sækja atvinnu hafa ekki um mikið að velja. Skortur á húsnæði hamli fjölgun íbúa í sveitarfélaginu þar sem lítið og stundum ekkert íbúðarhúsnæði standi til boða.

Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagastrandar: „Það er veigamikill þáttur í uppbyggingu á atvinnu í sveitarfélaginu og auknum umsvifum í ferðaþjónustu að til staðar sé hentugt húsnæði fyrir aðila sem vilja setjast að á Skagaströnd. Sveitarfélagið fagnar þessu framfaraskrefi sem felst í samstarfi við HMS og vonast til þess að það verði gjöfult til framtíðar þegar kemur að nýbyggingum á fasteignum á Skagaströnd.“

Í viljayfirlýsingunni sem kemur fram að markmið samstarfsins sé að fjölga íbúðum í sveitarfélaginu þá meðal annars með því að nýta þau úrræði sem HMS hefur úr að ráða og auglýsa eftir byggingaraðilum sem vilja taka þátt í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu. Ásamt þessu komi sveitarfélagið og HMS til með að vinna að eflingu stafrænnar stjórnsýslu í sveitarfélaginu meðal annars með útgáfu á stafrænni húsnæðisáætlun, markvissri notkun mannvirkjaskrár HMS auk þess að undirbúningur hefjist við skráningu leigusamninga á svæðinu í húsnæðisgrunn HMS.

Skagaströnd.

DEILA

Fleiri fréttir

Leigufélagið Bríet auglýsir eftir byggingaraðilum til samstarfs

Leigufélagið Bríet hefur hafið samstarf við sveitarfélögin í landinu og ætlar að koma að íbúðauppbyggingu víðsvegar á landsbyggðinni. Bríet hefur auglýst eftir byggingaraðilum til...

Ný húsnæðissjálfseignastofnun fyrir landsbyggðina

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur óskað eftir samtali við sveitarfélögin vegna hugmyndar um nýja húsnæðissjálfseignarstofnun (hses.) sem er ætlað að eiga og reka íbúðir...