Opin umræða um framtíð íbúðamarkaðar á Austurlandi

Opinn fundur um þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar á Austurlandi var haldinn fimmtudaginn 20. nóvember í húsnæði Austurbrúar á Reyðarfirði. Fundinn sóttu um 35 manns og skapaðist góð og gagnleg umræða um stöðu húsnæðismála í landshlutanum. Að fundinum stóðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), samstarfsverkefnið Tryggð byggð og Austurbrú. 

 Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, hóf fundinn með yfirferð um stöðu húsnæðismála í sínu sveitarfélagi. Þá fór Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS, yfir stöðu íbúðauppbyggingar og húsnæðisáætlanir sveitarfélaga á Austurlandi og greindi helstu áskoranir og tækifæri í landshlutanum. Dagný Geirdal, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS, kynnti að lokum innleiðingu stafrænnar stjórnsýslu í byggingarmálum, þar á meðal sameiginlegt umsóknarkerfi fyrir byggingarleyfi og ávinning þess fyrir sveitarfélög og íbúa. 

 Á fundinum var jafnframt skrifað undir viljayfirlýsingu á milli Fjarðabyggðar og HMS, um áframhaldandi uppbyggingu íbúða og eflingu stafrænnar stjórnsýslu. Með yfirlýsingunni er m.a. lagt upp með að leita áfram leiða til að auka aðgengi að fjölbreyttum húsnæðiskosti í Fjarðabyggð, hraða nýbyggingum, bæta yfirsýn yfir íbúðalóðir og efla stafræna stjórnsýslu húsnæðis- og byggingarmála í sveitarfélaginu — aðgerðir sem styðja við markmið um tryggt húsnæðisöryggi og fjölbreyttan íbúðakost á Austurlandi. 

 Jóna Árný sagði við þetta tilefni: „Öruggt og fjölbreytt húsnæði er ein af lykilforsendum þess að fólk velji að búa og setjast að á Austurlandi til lengri tíma. Umræðan á fundinum sýndi að hér er til staðar bæði vilji og kraftur til að flýta uppbyggingu og finna lausnir sem henta ólíkum íbúum á mismunandi æviskeiðum.“ 

Elmar Erlendsson, framkvæmdarstjóri HMS sagði einnig: „Með viljayfirlýsingunni stígum við og Fjarðabyggð skýrt skref í átt að hraðari íbúðauppbyggingu, betri yfirsýn yfir lóðir og öflugri stafrænni stjórnsýslu.“ 

Fundarstjóri var Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Gestum var boðið í léttar veitingar og í samtal við frummælendur að fundi loknum. 

DEILA

Fleiri fréttir

Sérstök lán til nýbygginga á landsbyggðinni

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði í morgun breytingar á reglugerð sem gerir það að verkum að sveitarfélög, einstaklingar og óhagnaðardrifin félög á...

Nýir nemendagarðar að rísa fyrir Menntaskóla Borgarfjarðar

Framkvæmdir eru hafnar við nýja nemendagarða fyrir Menntaskóla Borgarfjarðar að Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Um er að ræða nýbyggingu sem verður hluti af svokölluðu...