Opnað fyrir umsóknir um stofnframlög

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur opnað fyrir umsóknir um stofnframlög þar sem umsóknarfrestur er til og með 24. október 2021.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun úthlutar stofnframlögum til samfélagssinnaðra leigusala til að kaupa eða byggja almennar íbúðir. Markmiðið er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum og bæta húsnæðisöryggi eignalítilla og tekjulágra. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna.

Almenna íbúðakerfið var sett á stofn árið 2016 og hefur nú þegar 17,3 milljörðum króna verið úthlutað til byggingar og kaupa á 2.899 íbúðum víðsvegar um landið. Heildarfjárfesting í uppbyggingu nemur um 89 milljörðum króna.

Sækja má um stofnframlög hér.

DEILA

Fleiri fréttir

Nýr íbúðakjarni afhentur fyrir fatlað fólk í Fjarðabyggð

Lokið hefur verið við byggingu nýs íbúðakjarna fyrir fatlað fólk auk skammtímavistunar fyrir fötluð börn í Fjarðabyggð og fékk íbúðakjarninn nafnið Skálinn. Framkvæmdir hófust...

Ekki verið að byggja nóg til að mæta íbúðaþörf á Austurlandi

Fjöldi íbúða í byggingu á Austurlandi er ekki nægilega mikill til þess að mæta íbúðaþörf samkvæmt húsnæðisáætlunum sveitarfélaga í landshlutanum. Þetta kom fram á...