Leigufélagið Bríet auglýsir eftir byggingaraðilum til samstarfs

Leigufélagið Bríet hefur hafið samstarf við sveitarfélögin í landinu og ætlar að koma að íbúðauppbyggingu víðsvegar á landsbyggðinni. Bríet hefur auglýst eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum í 8 sveitarfélögum til uppbyggingar á allt að 26 leiguíbúðum og verður stefnt á að auglýsa eftir byggingaraðilum í fleiri uppbyggingarverkefnum á næstunni.
Í verkefnunum verður horft er til gæða lausna, að íbúðirnar séu hagkvæmar og falli vel að leigurekstri. Óskað er eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingunni og skal byggingaraðili vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Bríeti.
Það er hlutverk Bríetar að bjóða einstaklingum og fjölskyldum upp á traust og hagkvæmt leiguhúsnæði á landsbyggðinni með því að stuðla að auknu framboði í samstarfi við sveitafélögin og aðra hagaðila. Þannig er Bríet virkur þátttakandi í að auka húsnæðisöryggi, örva atvinnulíf og styðja við íbúaþróun.

DEILA

Fleiri fréttir

Nýtt raðhús á Húsavík

Bjarg íbúðafélag er að ljúka við uppbyggingu á raðhúsi á Húsavík þar sem sex nýjar leiguíbúðir rísa með stuðningi stofnframlaga frá ríki og sveitarfélagi....

Nýtt raðhús rís á Hólmavík

Brák íbúðafélag hses. er að ljúka við byggingu á fjögurra íbúða raðhúsi á Hólmavík í Strandabyggð. Byggingaraðilinn Búðingar ehf. hóf framkvæmdir við bygginguna í ágúst...