Lýsing á verkefni
Áætlanir eru um að breyta húsnæði sem áður nýttist sem heimavist í Laugalandi við Þelamörk í 10 íbúðir til langtímaleigu.
Hörgársveit er hluti af tilraunaverkefni HMS um uppbyggingu húsnæðismála á landsbyggðinni og hefur um nokkurt skeið verið unnið að útfærslu á verkefninu í samvinnu við HMS svo hægt sé að bjóða upp á fjölbreyttan húsnæðiskost í sveitarfélaginu. Verkefnið er í undirbúningi.