Nýjar íbúðir að verða tilbúnar í Stykkishólmi

Það styttist í afhendingu íbúða sem Brák íbúðafélag hses. er með í byggingu við Bauluvík í Stykkishólmi. Unnið er að lokafrágangi og áætlað að fyrstu íbúðir verði teknar í notkun í desember næstkomandi og þá leigðar út til tekju- og eignaminni heimila. 

Íbúðir Brákar, sem verða alls 12 talsins í þremur fjölbýlishúsum, eru um 60 til 95 fermetrar að stærð með einu til þremur svefnherbergjum. 

Brák íbúðafélag fékk samþykkt úthlutun á stofnframlagi fyrir þetta verkefni í úthlutun HMS árið 2023. Íbúðirnar eru því fjármagnaðar með stofnframlagi frá ríki og sveitarfélagi ásamt sérstöku byggðarframlagi og leiguíbúðaláni frá HMS. 

Verkefnið er hluti af Tryggð byggð – samstarfsvettvangi um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni. 

DEILA

Fleiri fréttir

Brák hses. stofnuð af sveitarfélögum á landsbyggðinni

Síðasta haust lagði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) fram tillögu um hugmynd að nýrri húsnæðissjálfseignarstofnun þar sem sveitarfélög á landsbyggðinni myndu sameinast um uppbyggingu og...

Nýjar íbúðir fyrir aldraða á Seyðisfirði

Brák íbúðafélag hses. hefur lokið við uppbyggingu nýrra leiguíbúða við Lækjargötu 2 á Seyðisfirði sem ætlaðar eru íbúum 60 ára og eldri. Um er...